Sumac hefur verið einn vinsælasti veitingastaður landsins um árabil og nú lítur matreiðslubók staðarins dagsins ljós. Áhersla er lögð á ferskt og gott hráefni sem matreitt er undir áhrifum Mið-Austurlanda og Norður-Afríku. Eldur, framandi krydd, fjölbreytileiki og hollar og girnilegar nýjungar eru meginstef bókarinnar sem inniheldur fleiri en hundrað uppskriftir sem prýtt hafa matseðil Sumac.
Þráinn Freyr Vigfússon hefur starfað á mörgum virtum veitingastöðum á Íslandi og erlendis. Hann opnaði veitingastaðina Sumac og ÓX árið 2017. Þráinn hefur verið valinn kokkur ársins hérlendis, keppt fyrir Íslands hönd í Bocuse d’Or og verið meðlimur og þjálfari kokkalandsliðs Íslands.
Bókina prýða glæsilegar ljósmyndir eftir Heiðdísi Guðbjörgu Gunnarsdóttur.
ATH. Eftir að gengið hefur verið frá kaupum er hægt að nálgast bókina á veitingastað Sümac, Laugavegi 28 101 Reykjavík. Ef þú vilt fá bókina senda í pósti þá er hægt að klára kaupin í neðanverðum hlekk.
https://www.salka.is/collections/matreidslubaekur/products/sumac